Pizzahöllin er eitthvað það hrikalegasta fyrirtæki sem ég hef nokkurn tíma þurft að eiga samskipti við! Nenni ekki að rekja ástæðuna (eða ástæðurnar) frekar en þörf er en ég mæli alls ekki með að taka þá áhættu að versla við það fyrirtæki. Lengjan myndi a.m.k. ekki gefa Pizzahöllinni háan stuðul á að þeir haldi viðskiptavinum… það er t.d. greinilegt að þeir vilja ekki láta ná í sig því ekki er nokkurs staðar gefið upp annað en pöntunarsími þar sem misvitrir unglingar sitja fyrir svörum. Já fussumsvei og sveiattan! Hrói höttur hjír æ komm! :p



Vildi bara koma með svar við þessari grein þar sem hún birtist svo ofarlega á Google þegar nafnið er slegið inn.
Það er orðið langt síðan þetta var ritað og margt breyst síðan þá.
Nýjir eigendur tóku við staðnum í október 2008 og erum við að leggja allt kapp á að breyta því sem breyta þarf.
Meðal þess hefur verið að við notum einungis fyrsta flokks hráefni. Við notum eingöngu kjötvörur frá Ali kjötvinnslu sem er að mínu mati með langt besta pepperoni á markaðnum, úrvarls tómatvörur frá Hunts sem er blandað ásamt kryddum til að fá sósuna okkar og síðan notum við eingöngu 100% íslenskan ost, engan gerviost hér!
Ánægja viðskiptavina er það sem okkur skiptir mestu máli og vil ég því bjóða greinarhöfundi að koma til okkar og fá fría pizzu til að sannfærast um að við höfum sannarlega snúið við blaðinu.
Hlökkum til að sjá þig
Aldrei að vita nema að ég taki góðu boði við tækifæri því eins og allir jú vita þá eru flatbökur fæða guðanna!