Naunaunau, Barbie-strákurinn og mamma hans komust áfram í Evróvísjón með hið ágæta popplag “Fullkomið líf“. Eins gott að lagið sem ég held með, Divine með Sébastien Tellier frá Frans (orðið á götunni hermir að hann komi á stormskerið áður en langt um líður til að spila hljómlist sína), hafi verið öruggt í aðalkeppnina því lögin sem ég hélt með í forkeppnunum tveimur, Belgía og Búlgaría, komust ekki áfram. Minns bara orðinn Evróvísjón-nörri á gamals aldri en það þarf svo sem ekkert að koma á óvart, hef alltaf verið sérlegur áhugamaður um vonda popplist! En áhuginn þetta árið skýrist eins og áður sagði af þátttöku Tellier í keppninni sem og nauðsynlegri upphitun fyrir hið árlega og sérlega hressa Evróvísjón-teitis auk. Vive la France!
PjéEss: Nei, sparkbolti verður ekki ræddur á þessum bænum nema að umræðuefnið sé stórveldið Í.R.



væluskjóður