kreppa schmeppa!

8 10 2008

Þá er lox komið að færslu frá minnst stressaða og sjöunda hressasta Íslendingi þessa dagana.  Hef hreinlega haft lúmskt gaman af fjörinu í þjóðfélaginu undanfarið.  Sem helgast reyndar af því að ég er ekki að tapa neinu af ráði í þessum hressleika.  Svona rétt eins og ég græddi ekki skít á þessu svokallaða góðæri… sem reyndist svo ekki vera neitt nema fallvölt spilaborg ósýnilegra peninga.  Græðgisvæðingin, þetta fársjúka afkvæmi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, hefur brotlent svo um munar svo nú hamast menn við að hreinsa upp eftir sig skítinn og hverfa aftur til ríkisvæðingar.  Ég þakka bara fyrir að heilbrigðis- og menntakerfið hafi ekki verið komin í vasa einhvers gráðugs siðblindingjans líka!

Sé ég nú fram á betri tíð með blóm í haga því ég held hreinlega að það sorglegasta og hallærislegasta sem ég veit um er blessað lífsgæðakapphlaupið og tilgangslaus söfnun veraldlegs auðs og einskis nýtra hluta (sem verða jú að vera flottari en nágranninn á).  Nú neyðist fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það framkvæmir og kemst þá vonandi að þeirri niðurstöðu að það á flest allt sem það þarf.  Og í stað þess að eyða tíma og fyrirhöfn í nýjan jeppa, flottari innréttingu eða meiri gróða þá fari það að huga að sér og sínum.  Það mun koma ófáum á óvart að það má lifa fínu lífi án dýrra hluta og rykfallins gróða í banka.

Njótum lífsins og hvers annars því ég hef ekki nokkra trú að mikil fullnægja felist í græðgi og hégóma… ég persónulega tók ekki þátt í neinu góðæri svo ég bara læt það vera að taka þátt í múgæsingu og móðursýki kreppunnar.

Góðar stundir.


Actions

Information

2 responses

18 10 2008
Hannes Hólmsteinn

Ég er þér þarna ósammála. Við kapítalistar við teljum einmitt að græðgi sé engum til góðs. En hins vegar teljum við að graðgi sé ný og betri aðferð til þess að graða fullt af peningum…

16 01 2009
Tinnnes

elsku gimp, nenniru að blogga eitthvað skemmtilegt

Skrá ummæli