“skríllinn” talar

22 01 2009

Bloggletin hefur haldið undirrituðum í heljargreipum síðustu mánuði en maður hef þess meira tjáð sig augnliti til augnlitis og á Fésbókinni alræmdu.  Eeeeen það koma þó stundir sem þessar þar sem gremjan verður letinni yfirsterkari og maður verður að pústa smá.

Blessuð kreppan hefur jú náð mér síðan síðast, rétt eins og hún mun ná okkur öllum verði ekkert að gert.  Og ég hef básúnað pólitískar skoðanir mínar alveg óspart síðustu misserin sem og tekið þátt í mótmælum gegn ríkjandi stjórn svo það er líklega algjör óþarfi að fjalla frekar um það.  Náskylt er það þó sem pirrar mig þessa dagana.  Það er fólkið sem mótmælir mótmælum!  Nánast án undantekninga eru þetta barnalegir smáborgarar sem hafa kokgleypt við hræðsluáróðri bláu handarinnar og æsifréttamennsku fjölmiðla.  Barnalegir smáborgarar sem sjá ekki skóginn fyrir trjánum og láta glepjast af aukaatriðum á kostnað málstaðs sem þeir eru jafnvel sammála og ætti að vera að öllu eðlilegu aðalatriðið í umræðunni.  Ofbeldis- og skemmdarverk mjög lítils hluta mótmælenda hafa jú skaðað málstaðinn en það gleymist algjörlega í umræðunni að langstærstur hluti fólks hefur mætt til mótmæla með von og gleði í hjarta þrátt fyrir erfitt ástand og undirliggjandi gremju og reiði.  Von um að geta haft áhrif á ástandið sem skaðar okkur öll, og gleði yfir samheldninni og árangri sem augljós er hverjum sem ekki lætur blindast af fávisku og/eða áróðri stjórnvalda.

Til að taka af allan vafa þá fordæmi ég ofbeldis- og skemmdarverk þessa litla hóps mótmælenda.  Að sama skapi fordæmi ég einnig ofbeldisverk lögreglunnar.  Ofbeldisverk og óstjórn valdstjórnarinnar sem ég hefði ekki trúað nema að verða vitni að sjálfur.  Flestir lögreglumenn eru heiðvirðir prýðismenn rétt eins og við hin, en rétt eins og með svörtu sauðina á meðal mótmælenda þá skemma svörtu sauðirnir á meðal lögreglumanna fyrir hinum.  Og sýnist mér þá sauðirnir að mestu vera yfirmenn enda stjórna þeir aðgerðum.  Aðgerðum sem virðast oftar en ekki tilviljanakenndar og einungis til þess fallnar að æsa upp múginn.  En það er máski heila málið, að æsa fólk upp til ofbeldis- og skemmdarverka skipulega til að byrgja hinum almenna borgara sem ekki er á staðnum sýn.  Þannig er athyglin komin yfir á annað en vanhæfa ríkisstjórn og farin í auknum mæli að beinast að, eins og áður sagði, aukaatriðum.

Ég skora því á gagnrýnendur og þá sem ekki hafa látið sjá sig á mótmælum að koma á staðinn og sjá með eigin augum hvað er að gerast.  Friðsamt fólk á öllum aldri er að mótmæla ofbeldis- og skemmdarverkum stjórnvalda á okkur þjóðinni… með hávaða, söngli og jafnvel bros á vör þrátt fyrir allt.  Allir gjalda fyrir ofbeldis- og skemmdarverk mótmælenda og lögreglumanna en gefum þeim ekki aukið vægi með því að gera þau að aðalatriðinu í umræðunni.


Actions

Information

One response

28 01 2009
Tino

eins og talað úr míns eigins rassgati

Skrá ummæli